Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Vitlaus tími ??

08. febrúar 2009 klukkan 01:08
 jæja núna er ég ekki frá því að ég sé upp á vitlaus tíma. ég er ekki að meina klukkutíma séð heldur áralega séð. Já ég verð að segja að ég er frekar gömul sál í ungum líkama ef má segja það.
Um daginn eða réttara sagt fyrir nokkrum mánuðum var ég að horfa á soldið gamla mynd og komst þá að því að ég gjörsamlega elska tískuna sem var á stríðstímanum, Kjólarnir sem voru soldið rósóttir og hárið sett svona rosalega upp eða var slegið ef þú varst með krullur og síðan má ekki gleyma þessum geðveiku skóm sem voru í tísku þá. já ég er ástfangin af þessum tíma (tískulega séð).

Ég meina hva er ekki geðveikt við þessa tísku ???

Enn síðan er það tónlistin sem ég vil meina að segi líka til um að ég sé gömul sál í ungum líkama. já fólk mér finnst g0mul íslensk tónlist algjört æði einsog lög á borð við
Bláu Augun - Björgvin halldórsson
Ég er komin heim - Björgvin Halldórsson
Þrek og tár - Erla Þorsteinsdóttir og Haukur mortens
Jú þetta segir mér smá til að ég sé soldið g0mul í mér enn það verður að játast hér og nú að tónlist í þessum stíl er bara einfallega BEST. Enn annarrs held ég að þessi tónlist heitir balllöður ef ég hef á réttu að standa.

http://www.youtube.com/watch?v=tHpvHLk62qI
Þetta er Þrek og tár lagið mitt sem ég er mikið að spila þessa daganna

Annarrs sit ég hérna að reyna sjá sálfa mig lifandi á þessum tíma og hlusta á einhverjar svona ballöður af disknum íslandslög 4 var að hlusta á íslandslög 6 og verða að segja að hann er eiginlega skemmtilegri og svona meira minn stíll þótt að ég er að hlusta á lagið Gamla gatan - Björgvin halldórsson og minnir þetta mig soldið á Notebook verð að segja það og já meðan ég fór að tala um notebook hérna gerist hún ekki einhverntíman á þessum tíma þegar þessir kjólar voru í tísku 1950 sirka :P ??

enn heyrðu ég ætla fara sofa eða eitthva í þá áttina elskurnar ;**
góða nótt ;**
-Prinzezza sem er uppi á vitlausum tíma...

2. Febrúar

02. febrúar 2009 klukkan 01:37
þetta er nú algjört rugl og bugl....
ég held ég hafi reynt að blogga núna í viku eða ekki lengur :O !!!!
málið er að ég hef EKKERT að blogga um nema hva ég á verluega rólegt og litlaust í líf í augnablikinu sem er frekar allt mikið eins hjá mér núna....
svo í telefni á mínu litlausa lífi hef ég ákveðið að gera svona núverandi dót ::
Núverandi Föt? boxer og bolur
Núverandi Tími? 1:32
Núverandi Skap? ágætt held ég bara
Núverandi Hár? ljóst í hnút
Núverandi Pirringur? enginn held ég nema bara skóli á mrg
Núverandi lykt? engin
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera gera? sofa
Núverandi skartgripir? úr er það ekki skartgripur ?
Núverandi Löngun? kúr...
Núverandi Tónlist? Avril lavigne
Núverandi Ósk? morgundagurinn verði æði og hitt er leyndó
Núverandi Texti á heilanum? Heii komdu í partý
Núverandi farði? meik og maskari
Núverandi Undirföt? svört
Núverandi Eftirsjá? enginn einsog er
Núverandi Desktop pic? garfield ;**
Núverandi skemmtun? enginn nema msn
Núverandi msn manneskjur sem ég er að tala við? Biggi
Núverandi hlutir á veggnum? myndir og snagi fyrir töskur og annarr fyrir skart og síðan spegill
Núverandi uppáhalds þáttur? One tree hill
Núverandi löngun? vá margar einsog kúr og grænn frostpinni

svo þar hafið þið það fólks ;P
-lofa að fara koma með betra blogg enn þetta (A)
-Prinzezza

3 mín förðun + 30 mín húðhreynsun = neikvæða mamma XD

14. janúar 2009 klukkan 00:16
Þá er ný vika byrjuð og einn ný tækifæri til að gera það sem þú gast ekki klárað í seinustu viku einsog að baka köku handa mér eða einfallega bara færa mér eitthva að gott....

annarrs þá er lífið búið að vera awsome á þessu ári og get ég lítið kvartað :P....
Enn núna sit ég hérna að hlusta á mömmu mín vera neikvæða um förðun XD er að segja ykkur það að hún getur alveg farið á kostum í þessari neikvæðni XD þetta semsagt byrjaði með að hún sagðist ætla byrja mála sig fyrir vinnuna enn snarlega hætti við það þegar hún áttaði sig á því að hún þyrfti að vakna fyrr og það gegnur bar aALLS EKKI !!!! svo ég sagði henni að hún gæti bara gert svona 3 mín förðun og mamma fór að lesa þetta á þá byrjaði neikvæðnin XD í þessari förðun eru 6 skref sem mamma held ég hafi alveg rakkað niður öll XD...
Skrefin voru svona 1. Eftir að krem hefur verið borið á húðina er annaðhvort hægt að setja þunnt lag af lituðu dagkremi og/eða púðurfarða yfir til þesss að hylja betur roða og gera húðina mattari - og þarna byrjaði hún og sagði að þetta væri nú alveg sko 5 mín bara í þetta og benti mér á það að þarna stóð EFTIR AÐ XD
2. Það getur verið gott að fela bauga með örlitlum hyljara á bauga undir augum og dreifa vel úr. Það er ágætt að gera æaður enn púðurfarðinn er settur á andlitið ef hann er notaður - Mamma sagði að þarna bættist alveg við aðrar 5 mín því nú þyrfi að fara kreysta hyljarann ég benti henni á það væri til baugafelari sem þú snýrð mamma sagðist þa´eiga þannig enn hann væri með svo sjálfstæðan vilja að það kæmi aldrei neitt útúr honum XD
3. Mildum augnskugga er dreift mjúklega í línu kringum augum
4. brúnn maskari á efri og neðri augnhárin gefur mildara útlit enn svartur maskari - þarna tók hún bæði 3 og 4 skrefið saman og sagði að þetta tvent væri nún alveg ágætur tími því maskarinn klesist alltaf svo...
5. Kremkinnalitur gefur náttúrulegan ferskleika, eins má nota sólarpúður á kinnbein. það er alltaf fallegt ap skyggja kinnar og kinnbein mep kinnalit eða sólarpúðri sem kemur hreyfingu á faðarn og/eða púðrað andlit. - Þarna missti hún sig alveg í gleðinni og sagði að setja eitthva svona dót á kinnarnar tæki nú alveg slatta af tíma og afhverju varstu að setja púður á andlitið ef þú þarf að setja það aftur á og síðan áttu að skemma allt með því að koma hreyfingu á þetta allt saman XD..
6. varasalvi eða gloss borið á varinar - jú samkvæmt mömmu tæki þetta kannski 3 mín enn f-rðuninn öll í heild svona að minnst 25 mín XD

einnig fór hún að vera neikvæð yfir andlitshreynsun sem á að  taka ca 30 mín hún komst að því að það tæki mikið lengri tíma því þú þyrftir að sjóa vatn sem tekur alveg einhverjar mín og síðann áttiru að skella eggjahvítu í andlitið eftir að hafa slegið það smá með gaffli sem tæki nú alveg einhverjar mín og síðan áttiru að láta einhvern maska vera á þér í 10-15 mín þannig eftir að haf asoðið vatnið og legið yfir því einhverjar 2 mín og skelt egginu á þig og maskanum þá erti alveg kominn með alveg 30 mín enn þá áttiru eftir að skola huðina með kreistum sítrónusafa og vatni sem tekur nokkar mín og síðan að setja einhvert krem á þig sem þyðir að þetta tekur bara allt meira enn 30 mín !!!
þannig þá hfaið þið það það er ekkert sem heyrir 3 mín förðun eða 30 mín andlisthreynsun þetta tekur allt meiri tíma XD...

annarrs þá get ég ekki beiðið eftir að komast í helgarfrí og bara njóta þess að vera til er að pæla að skella mér í bíó, keilu eða bar aeitthva =D svo ef eitthva er að gerast um helgina þá bara call me ;**

"Heimurinn í kringum þig er ekki fallegri en þér finnst hann vera."

-Prinzezza

nýtt ár enn og aftur....

02. janúar 2009 klukkan 15:20
jæja þá er búið að sprengja upp 2008 og sprengja inn 2009....eftir allar þessar sprengjur og púður hef ég það sterklega á heilanum að þeir sem stálu púðrinu í hveragerði hafi búið í nágreni við mig því að einhver sem bjó í nágreni við mig var með stanslausar sprengingar frá því að erlenda fréttayfirlitið byrjaði og að skaupinu og síðan hélt hann áfram langt fram á nóttu og mátti halda að hann væri með þetta á einhverjum tímamæli því varla leið 3 sec frá því að ein kláraðist þartil að önnur var byrjuð !!!!....
Enn annarrs þá á heildina litið var seinasta ár bara frekar ágætt ár í stórum dráttum þá gerðist þetta hjá mér á árinu::

-fór til salou og barcelona í 2 vikur
-varð 17 ára !!!
-skipti um vinnu
-verslunarmannahelgin var alveg frábær ;**
-ég kynntist alveg helling af nýju fólki ;**
-Ég hélt áfram í FÁ eftir að hafa verið rekin þaðan (A)


já svona í stórum dráttum var þetta árið mitt sem frekar lítið gerðist á var svo sem bara í skólanum og vinna nánast allt þetta ár svo frekar lítið að segja frá....

"Nýtt ár er einsog óskrifuð bók. Skrifum í hana það sem í lok ársins minnir okkur á gleði í stað eftirsjár."

-Prinzezza

Gleðileg jól ;**

25. desember 2008 klukkan 00:13
Gleðileg jól allir ;**
Takki fyrir allar gjafirnar og kortin og alla kossana og knúsana sem ég fékk frá ykkur á seinustu dögum ;**

Annarrs þá var kvöldið fráæbrt og skemmdi ekki fyrir því hva jólatreéið okkar var vel skreytt :D
enda fór nánst heill dagurí að skreyta það =D frekar sátt með nýja tréið okkar =D
Við ákváðum að vera einsog aðrir og hafa þema á því í ár og varð þemað girle-þema frekar sátt bara enda frábært a' hafa svona lifandi tré svona einu sinni á ævinni =D
Enn ætla bar aóska ykkur gleðilegra jóla og þakka ykkur fyrir ALLT sem þið hafiuð gert á þessu ári fyrir mig ;**
-JólaPrinzezza ;** <3



Nýja Girle-þema tréið okkar =D

Stelpan á bak við bloggið...???

  • Nafn: Helga Hrund sigurðardóttir
  • Atvinna: American Style
  • Um mig: Helga Hrund-91 módel-RVK-American Style-meira um mig hérna til vinstri....
  • Annað: Brostu framan í heiminn og þá brosir heimurinn framan í þig...